Folinn er kominn í bolinn...
10.05.2008 14:58:50 / hannesa

Ég er kominn heim í heiðardalinn...

Jú sælt veri fólkið,

nú eru prófin afstaðin eftir stutta en hressandi törn og gekk þetta bara furðu vel miðað við þá vinnu sem farið hefur í blessað námið á þessari önn. Ég var búinn að segja við sjálfan mig á miðri önn að þetta væri allt of mikið að standa í fullu námi með vinnunni og kórsöng - nú er ég hinsvegar búinn að skár mig í námið á næstu önn og viti menn, ég er skráður í fimm kúrsa aftur!! Ég held að það sé kominn tími til að ég líti inn til læknis eða sálfræðings, amk. til einhvers konar félagsráðgjafa eða gúrús sem kennir mér að taka lífinu með ró og njóta þess að slappa af hehe

Núna er ég kominn heim í sveit í það sem foreldrar mínir kalla afslöppun og ég kvöð - meðan sigga siss kallar það helvíti!! Ég er sem sagt mættur hingað í þeim tilgangi helstum að kenni Siggu fyrir stærðfræðiprófið í MA því ég get ekki gert það helgina fyrir próf eins og venja er... því... ég... er... að... fara... til... Póllands!! vúhú

Brottför til Polska er fyrir mjaltir á sunnudagsmorguninn nk. eða 18. maí. Við byrjum á að dúnda okkur í Berlin (Ich bin ein Berliner) í nokkra daga með söng og glensi - aðalega þó glensi ef ég fæ að ráða ;) Við rúllum svo yfir til Póllands og verðum þar í nokkra daga - skoðum það helsta sem merkilegst getur talist ásamt því að drekka eitthvað að staðbundnum méði.

Undirbúningur fyrir þessa ferð hefur staðið í töluverðan tíma hjá mér. Ég er búinn að vera að safna skeggi undanfarið því ætlunin hjá okkur tenórunum er að fara út með gott mústas - málið er bara að mér dettur ekki í hug að vera með mústas hérna heima þannig að ég er með alskegg núna og það fær að vaxa áfram þar til út verður farið ;) Ég vona að drottinn og aðrir fyrirgefi mér þessar misgjörðir hehe

Vortónleikar Háskólakórsins voru um daginn og heppnuðust mjög vel - almenn ánægja var meðal tónleikagesta með framistöðu kórsins og við vorum að mestu sátt við okkur sjálf líka. Í þessari viku hef ég svo verið að syngja á vortónleikaröð Karlakórs Reykjavíkur og hún hefur heppnast alveg geggjað vel þó ég segi sjálfur frá - enda um geysilega góðan kór að ræða. Síðustu tónleikarnir eru núna í dag klukkan 17 í Langholtskirkju og hvet ég alla sem vetlingi geta valdið að mæta á svæðið - þið munið ekki sjá eftir því.

Eftir að tónleikum og prófum lauk hafði ég loksins tíma til að gera eitthvað heima - og mitt fyrsta verk var að skrúfa niður snúrurnar sem voru yfir sturtunni heima. Þetta voru heilar þrjár skrúfur sem þurfti að taka úr og þá var þetta komið. Það er rétt að geta þess að ég er búinn að horfa á þessar þrjár skrúfur á hverjum einasta morgni síðan ég flutti inn meðan ég hef staðið í sturtunni... þannig að þetta er mikill sigur. Nú þegar ég var búinn að skrúfa niður snúrurnar fór ég með þær fram á gang og lét þær standa upp við vegginn þar... og núna tæpri viku seinna standa þær þar enn!! Já mikill er framkvæmdahugurinn er gleðin er eitthvað minni þessa dagana ;)

En nú er allt komið á fullt fyrir sumarið - þeas í skipulagningu á því hvað á að gera og hvað ekki. Fyrirhuguð er ferð austur á land, skotferð á Þingvöll, námskeið í Stokkhólmi og viðkoma á Humarhátíð á Höfn svo eitthvað sé nefnt. Mikilvægasta skipulagningin er þó road trip ferð til Bandaríkjanna sem farin verður eftir að meistaragráðan er komin í hús - áætlaður tími á því er sumarið 2009 - já saaaaaaælll!!!

Annars hef ég svo sem fátt að segja ykkur bollurnar mínar - þannig að ég ætla að fara að drullast til að kenna siss eitthvað.

Með vinsemd og virðingu,
Skeggi

» 6 hafa sagt sína skoðun

26.04.2008 12:42:00 / hannesa

Fastir liðir eins og venjulega...

Kæru börn,

þá er próftíðin hafin hjá mér enn einu sinni - og því við hæfi að skrifa nokkrar hugleiðingar niður á blað og dreyfa visku minni og gæsku yfir líðinn. Það hefur myndast nokkuð sterk og rík hefð í mínu lífi að blogga mest þegar minnstur er tíminn - eins og núna þegar prófin eru hinum megin við hornið - fyrsta pórf eftir þrjá daga og svo tvö í viðbót á 10 dögum, aahha - just like old times ;)

Annað sem virðist alltaf verða algjör nauðsyn í próftíð eru þryf og þvottamál - en ég hef ákveðið að þroskast í þetta skiptið og sleppa öllu slíku rugli hehe, í staðinn ætla ég að syngja á fimm tónleikum á næstu tveimur vikum. Það ætti að halda manni uppteknum.

Ég hef ekkert að segja - en það er bara ekki minn stíll að þegja þannig að áfram höldum við veginn... síðast þegar ég fann mér tíma til að segja ykkur frá lífsbaráttu minni var í þynnkunni eftir árshátíð Kaupþings. Síðan þá hefur lífið gengið sinn vanagang og ýmislegt á daga mína dryfið, sumt frólðlegt, annað hlægilegt, eitthvað af leindóum, dulítið af slúðri og sitthvað af leiðindum - en allt hefur það lagst á eitt við að krydda lífið og tilveruna. Árshátíð Háksólakórsins er um garð gengin og æfingarbúðir með Karlakór Reykjavíkur eru afstaðnar, árshátíð Gleðikósins var haldin með pompi og prakt og búið er að hita vel upp fyrir Berlínarförina um miðjan maí. Það vill svo skemmtilga til að Óli Haukur og Lára sússan hans verða í Berlín á sama tíma og við þannig að von er á miklu og góðu fjöri og ljóst að ölsmökkun verður okkar helsta viðfangsefni þar í borg. Síðan er förinni heitið yfir til Póllands þar sem þrettán ára draumur minn um að stíga þangað fæti mun rætast - gott ef ég tek ekki bara mynd af því tilefni ;)

Núna er sem sagt farið að styttast í sumarfríið mitt - ég kalla það sumarfrí því ég verð ekki að gera neitt nema vinna í sumar :) hehe - enginn skóli og enginn kór. Þetta verður gott sumar - ég spái góðu veðri og tíðum sundferðum, grillveislum og ökuferðum út í sveitir landsins. Hafdís - við þurfum að nýta sumarið vel út því að þú ert að fara til úglanda næsta vetur!! Við Halli erum svo að skipuleggja aðra ferð austur á Egilstaði þar sem restin af vandamálum heimsins verður leyst - það eru held ég ennþá fjögur mál eftir útistandandi síðan síðast hehe

En jæja - núna kallar skynsemin... bókin er farin að æpa á mig líka...

Njótið dagsins og vorsins - þetta er fallegur tími sem rétt er að nýta í uppbyggjadi starf :D

MVV - H.

» 8 hafa sagt sína skoðun

16.03.2008 15:41:11 / hannesa

Loksinsloksinsloksins...

Jæja - kominn 16. mars og þetta er fyrsta færsla ársins... það er ekki til eftirbreitni börnin góð. En ég verð nú samt að viðurkenna að mér finnst ekki vera liðnir tveir og hálfur mánður rúmur síðan ég skrifaði áramótabloggið - finnst meira eins og það hafi verið í fyrradag, mesta lagi síðustu viku! Það hlýtur að merkaja að það er búið að vera nóg að gera og skemmtilegir tíma hafa runnið hratt framhjá manni. Það er ótrúlegt að það séu að koma páskar eftir viku (reyndar mjög snemma á þessu ári en samt að koma páskar) - strax eftir páska tek ég lokapróf í einum kúrsi í skólanum, tók eitt lokapróf í byrjun febrúar þannig að ég þarf bara að taka þrjú núna í maí. Það er bara hið besta mál og sér í lagi því kennsla í einum af þessum þremur er lokið núna - þannig að ég er í raun bara í tveimur;) - ekki að það skipti máli því ég mæti aldrei í tíma!! Vinnan verður skemmtilegri og skemmtilegri með hverjum deginum sem líður og ég læri á hverjum einasta degi eitthvað sem ekki var þekkt í gær - schnilld að fá að upplifa það! Deildin er líka alltaf að hristast betur og betur saman eftir að við "nýju" mennirnir komum inn og mórallinn geysilega góður. Það var árshátíð Kaupþings í gær og þvílíkt gaman, mikið djammað, sungið, drukkið og dansað. Það var söngleikjaþema og geysilega góð skemmti atriði, Gullfoss og Geysir héldu svo uppi góðu fjöri langt fram undir morgun (en þá fórum við niður í bæ hehe). Ég fór á afmælis tónleika Sálarinnar á föstudaginn með Fanney og Halla - og ég segi það og skrifa að þeir menn kunna að halda tónleika!! Kræst hvað það var gaman... þið sem voruð ekki þarna þið munið þurfa að útskýra það fyrir barnabörnunum afhverju þið mættuð ekki - þetta fer í sögubækurnar!! Bear Sterns féll um 45% á einum degi - katastrófía í uppsiglingu? maður spyr sig... ég held ekki samt, þetta er slæmt mál, en enginn dómsdagur - langt í frá... held að þetta sé bara tækifæri ;) En eins og kannski sést á þessum skrifum mínum þá hef ég ekki mikið að segja og eiginlega bara hálf leiðinlegur eitthvað - það er sennilega því ég er þunnur efti gærdaginn. Er samt ekki ónýtur í maga eða höfði - ég er bara svona þunnur, tussulegur eitthvað. Slojj og latur - langar upp í sófa að horfa á vídjó... preety woman eða love actually... that would make my day ;) Ég er að fara til Póllands með HÍ kórnum í maí - hlakka geðveikt til! Vonandi næ ég að hitta hana Ögu vinkonu mína síðan í málaskólanum á Englandi, það væri alveg til að toppa ferð sem stefnir annars í að verða þrusu góð - vahú!! Svo þarf ég að skella mér til Brussel að hitta Ernu - við ætlum reyndar að fá okkur latte á kaffihúsi í Berlin í maí (vá hvað það verður menningarlegt, hipp og kúl - það verður algjör bomba, b o b a, bomba!) Og þarf að komast aftur til New York að versla, og svo þarf ég að kíkja til London og Köben í sumar... alveg möst að koma þangað einu sinni á ári hehe En mest langar mig heim í Dæli - og þangað er ég að fara á miðvikudaginn í páskaFRÍ!!! Ég ætla að sofa út og glápa á vídjó og njóta lífsins - kannski maður fari í fjallið líka, hef ekki farið á skíði í 10 15 ár held ég... kominn tími á það. Hafdís ertu memm? Svo ætla ég í heimsókn til Gísla og fjölskyldu, sjá hvað litlu krúttin tvö hafa stækkað - manni skilst að þau stækki daglega hehe ;) Jæja - þá er best að krassa í sófann!! (ég þyrfti að kaupa mér fartölvu, þá gæti ég bloggað í sófanum... því ég blogga svo geðveikt oft sko, maður þarf að vera klár í slaginn þegar mómentið kemur hehe) Ár&Dalur hveður að sinni - njóttu lífsins og takk fyrir lesturinn. Góða nótt.

» 7 hafa sagt sína skoðun

27.12.2007 23:24:43 / hannesa

Nú árið er liðið...

jahh - eða svona næstum því ;) Þá er hefð og löng venja sem haldin hefur verið heilög hér á þessari síðu síðan síðla sumars 1987 að fara yfir annál ársins.

Janúar
Furðu snjólítið þótti vera í janúar þetta árið og var frost með minnst móti og var það mál manna að þetta vitti (eða segjir maður veitti?!?) á gott sumar. Árið hjá mér hófst með agalegum metnaði fyrir því að byrja aftur að syngja - ég hafði ekki sungið í kór eftir að ég var að vinna í London haustið á undan og saknaði þess mikið. Ég fór því í gamla góða Háskólakórinn aftur og fór að auki í prufu hjá Karlakór Reykjavíkur snemma í mánuðinum. Það var hann Sveinn Dúa Hjörleifsson sem sagði mér að mæta í prufu og ég gat ekki skorast undan þeirri áskorun. Þetta gekk bara svona líka rosalega vel og ég var tekinn inn í kórinn og unga manninum plantaði í 1. tenór. Síðan hefur Karlakórinn átt stóran þátt í mínu lífi og einkennist árið 2007 að mörgu leiti að þessum kór. Í svipin man ég ekki eftir mjög mörgu öðru sem gerðist í janúar. Þetta var á þeim tíma sem við bjuggum þrjú í Dunhaganum; ég, Hafdís og Ingunn - Víkingur flutti svo inn seinni partinn í mánuðinum og þá var heimilið loksins fullmótað ;) Ekki finnst mér ólíklegt að eitthvað hafi ég djammað í þessum mánuði og minnist ég sér í lagi afmælispartýs hjá Fjölla sem mig minnir að hafi endað á 90's balli á NASA með ógleymanlegum tilþrifum á gólfinu og hverjum slagaranum á fætur örðum!!

Febrúar
Í febrúar byrjaði svo að halla undan fæti... ég varð 26 ára gamall og æskan þar með búin (enn eina ferðina hehe), amk. einkenndist þetta tímabil mikið af því að fólk var að tala um hvað ég væri orðinn gamall og allt það - að nú væri farið að síga á seinni hlutann hehe... Svo var það endanlega komið á hreynt á þessum tíma að Katrín og Gummi ætluðu að selja Dunhagann þannig að það var orðið ljóst að ég þurfti að hugsa mér til hreyfings - annað hvort að fara að leigja eitthvað annað, kaupa mér eitthvað eða fara aftur í Þjórsárgötuna gömlu góðu. Söngstarfið gekk vel og hélt Háskólakórinn m.a. tónleika þar sem við frum fluttum verk eftir unga íslenska listamenn - nema í Listaháskóla Íslands. Þessir tónleikar þóttu takst ágætlega þó mér sjálfum hafi fundist þeir heldur slappir - en tenórinn var að sjálfsögðu æðislegur ;) Fyrsta djammið mitt með Karlakórnum var þorrablót sem haldið var austan við fjall - heljarinnar gleðskapur með miklum söng og gríðarlegu fjöri. Þar kynntist ég órjúfanlegum hlutum í kórnum eins og klósettsöng, sögunni um fyrst réttardaginn og hvernig það er að syngja með 60 blindfullum körlum - það bara fæst ekki meira kikk en það!! Á þessum tíma var ég farinn að horfa mikið í kringum mig eftir mastersnámi og varð fljótt mjög hrifinn af master í fjármálahagfræði við HÍ - ég nennti ekki að fara til útlanda í nám og þetta 45e nám var eitthvað sem mér sýndist að myndi henta mér þrusu vel.
Þorrablót var haldið heima í sveit þar sem Bjarni bróðir var í nefndinni og ég held svei mér þá að ég hafi aldrei skemmt mér svona vel á blóti áður - nema kannski því fyrsta þegar ég var í 10. bekk og við dönsuðum uppá borðum (í bókstaflegri merkingu!!)

Mars
Ég man ekki eftir neinu í mars nema að hann var góður og ég djammaði MIKIÐ - m.a. var árshátið Kaupþings í þessum mánuði með Júróvísjón þema - kreyzzí skemmtun sem ég mun seint gleyma!! Mánuðurinn fór í að skoða íbúðir og hvort ég ætti að leigja eða kaupa, einn eða með örðum, litla eða stóra íbúð?? Átti ég að fara í nám? Ég bjó til nokkuð mörg Excel-skjöl þar sem ég fór í gegnum kostnaðinn við þetta allt saman og skoðaði hvort ég gat hætt að vinna til að fara í nám eða hvað? Þetta var allt mjög óljóst á þessum tíma og ég fann að kominn var tími til að hrökkva eða stökkva!!

Apríl
Í apríl þá gerðist allt - ég meina sko ALLT!! Ég eyddi aleigunni minni í íbúðina mína, skráði mig í eins árs master og var búinn að áhvaða að fara í ársleyfi hjá Kaupþingi - ég var sem sagt kominn á hausinn, búinn að skrúfa fyrir launin mín og í ofanálag búinn að heimila þessum kennara ræflum að henda í mig öllum þeim verkefnum sem þeim lysti í!! En djöfulli var ég spenntur!!
Á þessum tíma var ég líka að syngja á mínum fyrstu vortónleikum með Karlakór Reykjavíkur og gekk það bara ógeðslega vel - og var ein mesta upplifun sem ég hef tekið þátt í sjálfur.
Undir lok mánaðarins breyttist svo allt á 12 mínútna fundi... ég hætti við námið, skipti um deild í Kaupþingi og fór yfir í markaðsviðskiptin - afleiðumiðlun var næsti áfangastaður, og kræst hvað það er gaman í þessu :)

Maí
Þá varð þetta allt formlegt og pottþétt, vinnu skiptin gengin í gegn, búið að dönna íbúðina. Ég var á hverju námskeiðinu á fætur örðu og lág heima og las um afleiður á kvöldin - sweet 8) Á þessum tíma var Hafdís flutt norður á Mývatn og Ingunn og Víkingur flutt á garðana þannig að ég var bara einn með Dunhagann, þá var hægt að fá fólk í heimsókn og hægt að halda almennileg partý!! Partýið sem ég er að tala um er náttúrulega hið fræga CapitalMarkets partý sem við heldum heima - það hefur aldrei og ég meina aldrei verið drukkið jafn mikið í þessu húsi og þessa nótt. Það var dansað í stofunni og inni í öllum herbergjum var partý - svona á þetta að vera!!

Júní
Úlla systir útskrifaðist úr MA með láði (eða svona þannig ;)) og ég fór að sjálfsögðu norður í útskriftarveisluna - mjög gaman og allt heppnaðist mjög vel. En ég fékk algjör aldurssjokk þennan dag!! Busar busanna minna voru útskirfaðir - og það sem meira er, fólkið sem var á 1. ári þegar ég kenndi var búið með MA - jiminn hvað ég var orðinn gamall :) En mér fannst bara nokkuð gaman að horfa uppá þetta unga fólk hefja lífið, falleg stund útskrift frá MA. Aftur til hamingju öll.
Ég fékk íbúðina afhenta og framkvæmdir hófust af fullum krafti - nenni ekki að segja ykkur frá þeim, en þær ganga nokkuð vel...
Ég hafði ekki mikinn tíma fyrir sumafrí í sumar - enda nóg að gera í nýjum vígstöðvum í vinnunni og margt sem ég þurfi að læra fljótt og örugglega.
Eitt sérlega eftirminnilegt atvik átti sér stað minnir mig 15. júní frekar en 14. júní - þá gerðum ég, Siggi og Balli vel í glasi tilraun til að syngja þjóðsönginn fjórraddað með hjálp tölvunnar í Dunhaganum. Það gekk óaðfinnanlega að okkar mati :D

Ágúst
Núna fóru hlutir að gerast! Margt í gangi í þessum mánuði, ættarmót og Egilstaðarferð með Halla þar sem við hittum fyrir Sigga og Balla - þar var vel tekið á því og flest öll af vandamálum heimsins voru leyst þarna á einni helgi. Við fundum lausn á deilunum við Miðjarðahafið, náðum að virja Dettifoss og Gullfoss án þess að nokkur maðu tæki eftir því, bjuggum til lyftu út í geimstöðina MIR og ég veit ekki hvað og hvað... allt saman var þetta að okkar mati sára einfalt og þarfnaðist ekki mikillar fyrirhafnar - við vorum mest hissa á því að menn séu ekki löngu búnir að þessu öllu!!
Ég ákvað í þessum mánuði fimm dögum áður en kennsla hófst að skrá mig í master í fjármálaverkfræði í HÍ og fékk undanþágu frá tímarömmum og allt gekk vel. Námið fékk þó að sitja pínu á hakanum á þessu hausti því það var margt annað sem þurfti alla mína athygli hehe
Reunion hjá gamla körfuboltagenginu úr Þór vakti mikla lukku og vakti upp ljúfar minningar um góða tíma :)

September og Október
Þessi tími er í einhverju móki hjá mér - vitlaust að gera í vinnunni, brjálað í kórnunum tveimur, námið alveg á fullu og ég veit ekki hvað og hvað. Mér tókst nú samt að fara í geðveika ferð til New York með Öddu, Ísa og Ollý, thx guys!
Ég bara hlít að hafa gert eitthvað annað og meira á þessum tíma - ég bara man það ekki í svipinn :s

Nóvember
Hérna var jóla stressið farið að segja til sín og ljóst að ég átti eftir að gera mjög margt áður en ég kæmist í jólafrí... listinn var langur, tónleikar, verkefni, próf, matarboð og allur fjandinn. En viti menn - það gekk bara nokkuð hratt á hann blessaðan

Desember
Já þetta gekk allt upp og árið endaði með pompi og prakt! Prófin gengu mjög vel, allir tónleikar vonum framar, öllum verkefnum var skilað og ég komst norður. Þessi tími er of nálægt mér í sögunni til að geta sett hann í sögulegt samhengi og ég mæli frekar með því að þið lesið bara síðustu færslur því ég næ ekki að segja frá þessu betur hér en þar...

Að lokum...
Nú er við hæfi að þakka nokkrum einstaklingum og fyrirtækum fyrir árið sem er að líða - þetta verður aldrei tæmandi list heldur aðeins það sem er mér næst núna, þið örfáu sem gleymist ég man líka eftir ykkur :)
Mamma og pabbi - takk fyrir ómetanlegan stuðning á árinu, eins og áður þá væri ég lítið án ykkar.
Bjarni og Kristrún - takk fyrir blótið og allar samveru stundirnar á árinu, þið eruð ekta.
Úlla og Ketill - til hamingju með útskriftina Úlla og takk fyrir samveruna í R3 í haust, það myndi vanta eitthvað þar ef þið væruð ekki.
Sigga og Steinþór - litlu blómin mín tvö hehe, takk fyrir árið sem er að líða, vonandi hitti ég ykkur ennþá meira á næsta ári!!
Halli og Fanney - ómetanlegir vinir sem ég gæti ekki verið án, thx 4 everything
Siggi og Bergdís, Óli og Lára, Fjölli og Berglind, Lovísa og Finnur, Hildur og Óskar, Ilmur og Jón - takk fyrir samveruna á árinu, hlakka til að sjá ykkur sem oftast á því nýja
Kaupþings Riskið - takk fyrir frábært samstarf á árinu og liðnum árum. Ég lærði gríðarlega mikið af ykkur og þið eigið miklar þakkir skildar.
Hlutabréfa teimið - takk fyrir magnaða kynningu á nýju starfi og frábærar móttökur í nýju starfi - ég hlakka mjög mikið til komandi ára
Villa og Anna og Co. - takk fyrir samveruna og hlakka til að sjá ykkur í jólaboði hérna í Dæli á sunnudaginn.
Lára Kristín - þú ert ómetanlegur djammfélagi. Takk fyrir allt ruglið og alla gleðina
Hafdís - það er nú eiginlega bara asnalegt að segja eitthvað við þig hérna, þú veist alveg númer hvað þú ert!!
Ingunn og Víkingur - takk fyrir sambúðina ;)
Meðlimir Háskólakórsins - takk fyrir samsönginn, djammið og gleðina - við skulum gera Póland að okkar landi á nýju ári!
Kæri tannsi - takk fyrir kynnin á árinu, hlakka til næsta árs :)
Erna Jóns - vertu dugleg í Brussel en mundu að koma heim!! og P.S. ég er búinn að læra að drekka kaffi!!
Karlakór Reykjavíkur - ég held að það lesi enginn ykkar þetta blogg nema kannski Svenni, en samt takk fyrir árið og vonandi verðu það næsta í einhverri líkingu við þetta ;)
Vilborg - takk fyrir kjaftasögurnar og bullið ómetanlega, það verður gott að hafa þig heima á Íslandi
og þið hin sem ég er að gleyma - þið eruð ekki síður mikilvæg í mínu lífi.

Það sem mér fannst einkennadi fyrir þetta ár sem nú er að líða er mitt nýja lífsmottó:
"Lifðu á brúninni - mundu bara hvar hún er!" eða í þjállri útgáfu "Finndu brúnina og lifðu á henni"

Með kærri þökk fyrir árið sem er að líða og von um farsæld okkar allra á nýju ári

Við sjáumst með hækkandi sól 8)
H.


» 10 hafa sagt sína skoðun

23.12.2007 17:21:01 / hannesa

Nú meiga jólin koma...

Daginn hálsar (og hausar og axlir líka...)

þá er það staðfest - jólin meiga koma í öllu sínu veldi ;) Ég er búinn að gera allt sem ég þarf að gera, allar jólagjafir komnar í hús, öll próf og verkefni búin, allir tónleikar frá, öll partý búin, allir vinnudagarnir búnir - og það sem meira er... ég er kominn heim í heiðardalinn!

 Ég keyrði norður með Úllu syss og Kela má á föstudaginn og er síðan búinn að dúlla mér hérna heima í faðmi fjölskildunnar. Helstu breytingar eru þær að það er kominn ljósleiðari inní hús - sweeeeet!! Það er búið að skreyta allt og þrýfa öll gól en ég á ennþá eftir eitt af því sem skilgreinir jólin fyrir mér - að þrýfa sturtubotninn niður í kjallara :D Tek hann á morgun!!

Ég hef svo sem lítið að segja þannig séð - tónleikarnir hjá Karlakór Reykjavíkur gengu bara þrusu vel og alveg ljóst að ég valdi mér rétta karlakórinn til að fara í - einfaldlega sá besti á landinu og hana nú!! Prófin gengu vel (amk. miðað við aldur og fyrri störf - aðalega fyrri störf, því ég var nú ekki búinn að vera neitt voðalega duglegur í haust hehe 8))

En þar sem ég hef ekki mikið að segja þá ætla ég að hætta þessu rausi og skoða hvaða kúrsa ég ætla að taka í vor - það þarf að velja og hafna ;)

Gleðileg jól kútarnir mínir - ég reyni að koma með hina árlegu áramótafærslu á milli jóla og nýárs... þið getið farið að hlakka til :)

Kveðja H.


» 0 hafa sagt sína skoðun

12.12.2007 14:39:35 / hannesa

Stuttar og hnitmiðaðarfréttir

Jú góðan og blessaðan,

 það var mjög lítið að gera í vinnunni í dag þannig að ég ákvað að hætta bara núna strax eftir hádegið og fara að læra. Ég sit núna við tölvuna heima og bíð eftir því að hún sé búin að prenta út glósurnar sem ég þarf á að halda til að læra - og ákvað að nýta tímann til að blogga smá á meðan ;)

Síðan ég bloggaði síðast hefur nú svo sem töluvert gerst þó það sé kannsi ekki neitt brjálæðislega mikið. Lokaæfing fyrir tónleika Karlakórsins var í gærkvöldi í Hallgrímskirkju og allt gekk þetta eins og í lygasögu - djöfulli er þetta kór orðinn góður! Ég þakka það þátttöku minni í honum - en aðrir eflaust einhverju örður 8)

Ég og Beggi kenndum um helgina krasskúrsinn okkar DeltaBúðir fyrir viðskipta og hagfræðinema á 1. ári við HÍ. Þetta gekk nokkuð vel - komumst að vísu ekki alveg eins hratt í gegnum efnið og við hefðum viljað, þurfum að slípa þetta smá fyrir næsta ár ef við ætlum að keyra þetta jafn vel og í fyrra. En ég held þó að flesti hafi farið ánægðir heim og vonandi höfum við náð að bjarga nokkrum úr villunni yfir á beinu brautina ;)

Ég fer norður eftir vinnu föstudaginn 21. des með Úllu barninu og Kela litla, sennilega í samfloti með Jóni Ragnari og Bjarna Eiríki og Bellu - það verður ættarmót í Brú hehe - svo er það bara hið ljúfa líf fyrir norðan fram til 2. jan árið 2008 takk fyrir takk góðan daginn!! Rólegheit, rómantík og sveitasæla hjá mér þessi jólin eins og svo sem mörg önnur á undanförnum árum. Ég er samt ekki alveg búinn að ákveða hvað ég á að gera sjálfum mér í jólagjöf þetta árið - er að hugsa um þurkara og viftu í eldhúsið - en finnst það samt eitthvað svo kellingalegt!! Mig langar að gefa mér eitthvað kúl! Playstation, Wii eða eitthvað álíka - en sennilega þarf maður að láta skynsemi vinna þessi jólin...

Djöfulli er þessi prentari lengi að þessu!! Næst set ég hann á draft, þetta gengur ekki!

Ég er að verða búinn að selja 40 miða á jólatónleikana okkar og það fer að styttast í að það verði uppselt - þið ykkar sem hafið áhuga á að koma á tónleikana getið haft samband - ég skal reyna að redda ykkur miðum, en drýfið ykkur í því, you snooz you looz ;)

 Jæja - þá er síðasta blaðið að renna út... Bókhlaðan here I come!!

Kveðja
Hannessemeraugljóslegaheimaaðlæranúnaþegarhannáaðveraívinnunnisinni


» 4 hafa sagt sína skoðun

03.12.2007 23:08:10 / hannesa

Förjar

Hallú allir sammen, jeg fórur með manskór Rækjavíkjur til Förjar um helgin og sang vi i tre konserter, en i Klaksvik og to i Thorshavn. Alle konserterne gik mjog vel og va mikid drukkid af rúsi aftaná sidari konserterne a sondaginn. Vi hitte borgarradarann i Thorshavn i listaskálanum o han gaf okkur breyd og djus a dreökka og kvinnurnar i klakksvik var mjög godar vid okkur med kokur og tea. Vi sang ogso med Thorshavn Manskor undir stjorn Bjarna, kórleidara theirra - og gik det helt fint.

I helt ut sat var tetta en fantastiske ferd med mange ljufe minninge og mun hún ljúva i min minningahus mean öldurnar ljúva.

Takk fyrir mjug minir elskuleu freaendur i förjar.
H.

Annað er nú svo sem ekki í fréttum - annað en það helst að nú er ég búinn með smá af þessum lista sem ég talaði um síðast. Messa í C-dúr með Háskólakórnum er afstaðin og gekk hún þrusu vel. Bassinn var þéttur, altin sexý, sópraninn drop dead gordjös og tenórinn var svo að vanda rjóminn á kökunni. Það eru öll verkefni í háskólanum búin núna - þannig að ég get farið að einbeita mér að próflestri núna - þannig að ég ákvað að byrja á því að blogga smá hehe 8) Og eins og glöggir lesendur sáu hérna að ofan þá er Færeyjarferðin afstaðin og gekk hún vonum framar - við sungum á þrennum tónleikum sem allir heppnuðust með ágætum og jafnvel eindæmum á köflum. Það voru vel á þriðja þúsund manns sem komu á þessa tónleika (sem er rúmlega 5% af færeysku þjóðinni takk fyrir takk góðan daginn). Umfjöllun um tónleikana má m.a. finna hérna:  http://www.uf.fo/les_tidindi.asp?Id=50907

En nú fer að koma tími á háttinn - það var eitthvað minna um svefn um helgina ;)

Kveðja H.


» 4 hafa sagt sína skoðun

20.11.2007 21:45:15 / hannesa

Já - jólin eru að koma í kvöld...

Jú satt er það jólin eru að koma – en þau eru nú ekki að koma kannski alveg í kvöld. Sem er mjög gott því ég á eftir að gera þónokkuð mikið áður en hátið ljóss og friðar gengur í garð með allan sinn hátíðleik og hlýhug. Ég á svona í fljótubragði eftir að gera þetta:
- fara til Færeyja með Karlakór Reykjavíkur og synjga þar á þrennum tónleikum
- fara í tvö lokapórf í skólanum
- skila töluverðu af verkefnum í skólanum
- syngja á tvennum tónleikum með Háskólakórnum
- kenna einn kúrs í stærðfræði við HÍ
- syngja á fjórum jólatónleikum með Karlakórnum
- vinna hvern einasta virka dag
- fara á nokkur jólahlaðborð
- kaupa allar jólagjafirnar
- kaupa mér flugmiða norður

Og sjálfsagt eitt og annað sem ég er að gleyma – en þetta er nú svo sem ekki mikið mál. Ég meina það eru nú alveg 36 dagar þartil klukkurnar klingja inn jólin... 

Núna er nokkuð um liðið síðan ég setti fram langa hugleiðingu hérna á þessari síðu um það hvort rétt væri að ég hætti að blogga. Skemmst er frá því að segja að nokkur hundruð manns hafa komið hérna inn síðan þá og hafa einungis átta manns reynt af veikum mætti að fá mig til að halda áfram með þessar útúr geggjaðislega töff og skemmtilegu bloggfærslur mínar. Þetta get ég ekki túlkað örðuvisi en það séu nokkur hundruð manns, hérlendis sem erlendis, sem þrái það ekkert heitar en að ég hætti að blogga. Mér dettur ekki í hug að gera þessum leiðinda leppalúðum það til geðs að verða við beiðni þeirra – og mun áfram halda úti þessari óopinberu heimasíðu viskunnar þar sem flest er logið, annað ýkt, eitthvað skáldað en fæst er satt – þetta veit ég fyrir víst og hef það fyrir satt. Það er líka gjörsamlega fáránleg hugmynd að halda því fram að það sé til fólk sem hefur ekki áhuga á mér og mínu lífi – who hasn’t?? 

En þá að máli málanna – starfsmannasjóðinum. 

R3 stefnir hraðar á það sem ég kalla kjörástand heldur en e í x-ta stefnri á óendanlegt þegar x stefnir á óendanlegt. Fyrri þau ykkar sem ekkert skilja í alheimstungumálinu þýðir þetta:
”Síðan ég bloggaði síðast um framkvæmdir og ástand íbúðarinnar minnar – sem glöggir og tryggir lesndur hafa lært að heitir í daglegu tali R3 þó svo Dagur og co í borginni kalli þetta fullu nafni Rauðarárstígur 3 – hefur bara þónokkuð gengið á. Búið er að koma flísunum á eldhúsið og ísskápurinn er loksins kominn á sinn samastað inni í eldhúsi. Það skapaði áhveðna tómarúmsstemningu inni í stofu þannig að ég festi fé í forláta borðstofuborði og kom því fyrir í stofunni (þannig að núna má segja að ég sé sem sagt með sex rollur inni í stofu sem eru bundnar með snæri við helvísti borðið...). Nú ekki gat ég keypt bara eitt borð – það hefði það orðið einmanna og hrætt innan um öll hin húsgögnin sem þekktust svo vel fyrir – þannig að ég tók annað sófaborð með til að halda því félagsskap. Þetta skapaði algjöran glundroða í stofunni – allt í einu voru komin tvö ný borð (og sex rollur í þokkabót) inní þetta litla lokaða samfélag. Þetta olli því að gamla litla bláleita sófaborðið fékk aðkast og brotnaði saman! Hörmuleg afleiðing þessarar innleiðingar sem ekki var fyrirfram sjáanleg. Ekki var hægt að vera með líkið af því inni á miðju gólfi þannig að ég gróf það í kjallaranum – ástam skrifborðsstólnum sem var orðinn heimilslaus eftir að nýju stólarnir komu í næsta innleiðingarferli. Mér áskotnaðist svo um daginn dulítill spegill sem er litlir 1,6 fermetrar að stærð (venjubundinn skeiðvöllur er að jafnaði um 2,5 til 2,8 fermetrar að stærð;) og þennan spegil hyggst ég seta á vegginn inni í stofu – aðeins svona til að auka rýmis tilfinninguna í íbúðinni. Þá á ég bara eftir að skella upp viftunni og setja nýja ljósaperu yfir eldhúsbekknum auk þess sem ég þarf að finna ljósakrónu í stofuna áður en ég get ráðis með kjafti og klóm á baðherbergið! Þannig að hér er eins og fyrri daginn allt á fullri ferð í átt að lokatakmarkinu sem er að íbúðin verði endanlega klár eins og ég vil hafa hana.”

Já nú sjáið þið hvað stærðfræðin er mögnuð – hún lýsti öllu þessu fullkomlega í einni lítilli setningu ;) 

Annað hefur að sjálfsögðu á daga mína dryfið nú sem endranær og væri of langur listi að telja það allt upp. Ég er búinn að fara í óvissuferð, vinnuferð, út að borða, eitthvað hefur maður kíkt á öldurhús bæjarins, starfsdagur hjá Kaupþingi, fyrirlestrar og námskeið og svona eitt og annað - margt skemmtilegt annað minna skemmtilegt. Kórstarfið gengur nokkuð vel á báðum vígstöðvum og er allt smá saman að verða að heild – og get ég lofað því að tónleikagesti verða ekki fyrir vonbrigðum með útkomuna. 

Hvað fynnst ykkur annars um ... æji, hérna ætlaði ég að koma með eitthvað gáfulegt – en ég bara mundi ekki eftir neinu, þannig að ég sleppi því... 

Annars er svo sem fátt og lítið að frétta – ég er ennþá að svipast um eftir þeirri einu réttu. Það er ekki eins og hægt sé að kaupa þetta bara í Hagkaupum á útsölu eftir jólin – óneibb. Það þarf að vanda valið – hún þarf að vera traus og örugg og hún þarf að endast eitthvað þið skiljið - nenni ekki að skipta aftur eftir nokkur ár bara, það er bara vesen sko. Svo þarf nú útlitið að vera í lagi líka – þetta má ekki stinga í augun þið fattið, það þarf að vera samræmi í þessu öllu. Það má ekkert klikka þannig séð – já það er sko ekkert grín að velja sér viftu yfir eldavélina krakkar mínir! 

Yfir og út – H.


» 8 hafa sagt sína skoðun

25.10.2007 22:31:51 / hannesa

Vangavelta...

Verður þú sár ef ég hætti að blogga?

H.


» 8 hafa sagt sína skoðun

29.08.2007 20:16:40 / hannesa

Jaa - hobbahobba...

Sælt veri fólkið og góðan daginn,

Þá er komið að því núna þegar þráðlausa netið er komið í lag að renna í örfáum orðum í gegnum það sem drifið hefur á daga mína og annarra síðan ég fékk íbúðina afhenda - þetta ætti ekki að taka langan tíma, en ég mæli þó með klósett ferð áður en lengra er haldið og hafið við höndina drykk og eitthvað sætt (t.d. mynd af mér eða eitthvað ;) ) því þetta verður alvöru ferð...

Þetta byrjaði á því að ég og Bjarni bróðir fórum galvaskir af stað og byrjuðum að rífa niður nagla, skrúfur, hillur, skápa og annað lauslegt úr íbúðinni auk þess að rífa hluta af gólfdúknum í öðru herberginu í burtu. Ég braut líka út úr nokkrum veggjum til að koma utan á liggjandi snúrum inn í þá auk þess sem við færðum til rafmagns innstungur og rofa og lögðum rafmagn á nýja staði svona þess á milli 8)

Þá var komið að því að spasla alla veggi og göt og pússa þetta svo niður til fjandans - það tók nokkurn tíma og í þessu naut ég traustrar aðstoðar Fanneyar og Halla. Ekki tók svo minni tíma að þrýfa veggi, loft og gólf áður en málningar vinnan hófst. Málinguna báru á fletina Fanney, Halli, Hildigunnur, Eyrún, Lára, Erna og mamma og pabbi - en þau komu hingað einn dag gömlu hjónin og puðuðu fyrir litla strákinn sinn - nice :)

Þegar búið var að mála alla íbúðina var komið að því að leggja parket á eina herbergið sem ekki var parketlagt fyrir - við Halli skelltum okkur í það eitt kvöldið og það gekk svona líka eins og í lygasögu alveg þangað til kom að því að leggja það undir gamla pottofninn sem stendur undir glugganum. Það var náttúrulega þannig að þá var Halli farinn og ég einn með þetta - brasið tók ekki nema um átta tíma í vinnslu og það er lengsti einstaki tíminn sem ég hef eitt í nokkurn skapaðan hlut hérna!! Þannig að það er eins gott að þegar þú lesadi góður kemur hingað í heimsók - sem að sjálfsögðu þú ert velkominn í hvernær sem þér hentar - þá biðjir þú um að fá að sjá þessa meistarlagningu undir ofninum, annars verð ég sár!!

Einnig er nú búið að rífa dúkinn af eldhúsinu og brjóta upp fyrir hitalögnunum og meira að segja búið að leggja þær í - þannig að það á bara eftir að flota yfir þær og leggja flísarnar á gólfið, þá er eldhúsið klárt fyrir utan að ég á ennþá eftir að leysa eitt vandamál með eldhúsboð og gluggakistuna. Ætla sko að reyna að gera borðið þannig að það nýti gluggakistuna líka, því ekki veitir af því að hafa eitthvað smá pláss þarna inni hehe ;) Ég koms svo fyrir öllum rafmagnstækjum og græjum með smá lagni í þessu litla plássi og þar fær stærstan sess sjálf kærastan mín sem aldrei svíkur mig, hin finnskættaða Setjjaaiaanna. En svo á ég reyndar eftir að setja upp viftu yfir eldavélinni - en ég er búinn að velja hana, á bara eftir að kaupa hana og setja upp, það tekur ekki nema um færeyskt korter eða svo

Allar gardínur eru komnar upp og búið að festa uppá veggi allar hillur og myndir sem ég ætla að setja upp núna í fyrstu umferð - annað kemur síðar bara. Ljósin eru komin upp á ganginum og í öðru herberginu en ennþá á eftir að velja ljós í stofuna og hitt svefnherbergið, þarf bara að fara og velja mér eitthvað sem er wild en samt þannig að snyrtimennskan sé í fyrirrúmi :p

Nú fyrir utan þetta allt saman er búið að koma húsgögnum, skrautmunum, fötum og örðu fyrir á sínum stöðum og að auki eru Úlla og kallinn hennar flutt inn í auka herbergið - fínt að fá þau hingað í kotið.

Og svo má náttúrulega ekki gleyma því allra mikil vægasta í þessum pakka öllum og það er að ÉG er fluttur inn í íbúðina MÍNA!!! SHitt hvað maður er orðinn gamall!

Já þetta er svona sirka það sem gengið hefur á hérna í Rauðarárstígnum síðan ég fékk lyklana - hljómar ekki svo ýkja mikið svona við lesturinn, en trúið mér - með fullri vinnu og tveimur fylleríum í viku þá tekur þetta á hehe 8)

En af mér sjálfur er svo sem ekki minna að frétta. Ég er búinn að hitta svo marga og gera svo margt að ég veit ekki vel hvernig ég á að segja frá því. Ég er búinn að bóka ferð til New York, búinn að skrá mig í meistaranám við verkfræðideild HÍ, búinn að skoða Kárahnjúka stíflu og fara niður í ein af göngunum, búinn að djamma vel og innilega við hin ýmsu tækifæri og á milli þessa alls hefur mér tekist að njóta lífsins og þess sem það hefur uppá á bjóða.

Það sem svona kannski stendur uppúr er þetta:
- Tjaldað í Túninu var haldið með pompi og prakt heima í Dæli þar sem Þormarar og viðhengi komu saman.
- Gullaldarárgangar Þórs í körfuknattleik komu saman til endurfunda þar sem spilaður var körfubolti, sagðar sögur, mjöður sötraður og markt annað gert til skemmtunar og gamans, thx guys fyrir þetta. Hlakka til næsta hittings.
- Útilega með tveimur af þeim sem ég er að fara með til New York var eina nótt um versló og tókst hún príðilega vel upp. Annars var versló þetta árið frekar róleg. Var hérna í borginni tvö af þremur kvöldum. Fyrst var lítið MA partý hérna heima og seinna kvöldið var afmælispartý hjá Láru kláru.
- Meistaraferð austur á Egilstaði í hús Sigurðar málmleysingja Einassonar var farin við annann mann, Harald hringtorg Lúðviksson um síðustu helgi. Þar hittum við fyrir Baldvinn gangnamann Jónbjarnarson og ég segi ykkur það satt góðir hálsar að þessa helgi áttu sér stað svo mörg gullin móment og svo mörg vandamál heimsins voru leyst að annað eins hefur sjaldan ef þá nokkurntíman átt sér stað á jafn skömmum tíma síðan sögur hófust.

Já og ég er sem sagt að fara til NY með Ísleifi, Ólöfu og Öddu úr vinnunni núna 19. sept. Við erum búin að panta veitingahúsin og bóka miða á Broadway - Start spreading the news I'm leaving to day...

Já og svo áhvað ég um daginn að fara með honum Halla hring í námið núna í haust - það er bara bull að gera þetta ekki á sama tíma og hann. Ég sem sagt skráði mig í meistaranám í fjármálaverkfræði við HÍ núna í haust og ætla að láta Halla fara í tíma og læra meðan ég er að vinna, svo kennir hann mér þetta á kvöldin. Reyndar ætla ég á kvöldin að vera að syngja með Háskólakórnum og Karlakór Reykjavíkur þannig að Halli þarf að kenna mér um helgar - en þá ætlum við að vera á djamminu og að horfa á fótboltann - þannig að námið fær bara eins og áður að sitja á hakanum hehe :D Enda erum við alveg nógu klárir til að höndla þetta bara svona - er ekki alltaf sagt að meistarnámið snúist um að læra að vinna en ekki að læra ;)

Jæja - þá er þetta komið gott í bili. Lifið heil og góðar stundir.
H.

P.S. Ég er búinn að áhveða að kalla nýja pleisið mitt R3. Ástæðan er einföld. Rauðarárstígur 3 = Redriverroad 3 = RedRiverRoad 3 = RRR 3 = R3 - ég meina það sér þetta hver heilvita maður!!

Out. 


» 17 hafa sagt sína skoðun

30.06.2007 19:38:22 / hannesa

Gott fólk

Ég er búinn að fá íbúðina afhenta - framkvæmdir eru hafnar - ykkur er öllum boðið að kíkja í heimsókn (annað hvort til að hjálpa, skoða eða bara til að koma með einn kaldann handa mér 8) )

Ég verð sem sagt í RedRiver eftir klukkan fimm næsta mánuðinn að hamast - whis me luck.

 Over and out - H.


» 10 hafa sagt sína skoðun

19.06.2007 20:25:50 / hannesa

Kominn tími til...

...að segja eitthvað af viti er það ekki?

En þá vill nú svo til að ég hef fátt að segja - það er helst í fréttum að ég er að fara á Air tónleikna í kvöld. Hún Tinna frá Sölden (þú heitir það sko í símanu mínum Tinna mín) var svo elskuleg að láta mig fá tvo boðsmiða sem hún átti. Ég verð nú að viðurkenna að fyrir einni og hálfri viku síðan þá vissi ég ekki hvað Air var - nema nottlea bara NikeAir skórnir sem Jordan auglýsti hérna í Den Tid, en núna er ég búinn að komast að því að þetta er frönsk hljómsveit sem sló í gegn fyrir um 10 árum og hefur síðan verið að festa sig í sessi á sínu sviði (sem ég veit ekki ennþá hvað er almennilega en held að sé svona rafmagnaðhipphopppopp dæmi eitthvað...). Vonandi verður þetta bara gaman ;)

Já og svo kláraði ég enn eitt námskeiðið í dag fyrir vinnuna - þannig að ég fer að verða búinn að ná mér í öll þau réttindi sem ég þarf til að geta sinnt þessu djobbi almennilega :)

Ég fór norður um helgina því hún Úlla litla systir var að klára MA - ég átti mjög bágt með að trúa því að hún væri búin með þetta... fattaði það sennilega ekki fyrr en hún stóð á dansgólfinu með hinum nýstúdentunum og söng lagið "Við kveðjum MA" (We are the champions með Queen) við undirleik hljómsveitarinnar Í Svörtum Fötum, þá skildi ég að hún var búin með þetta stelpan. Til hamingju Úlla mín með áfangann. Reyndar varð þessi norðurferð mín líka til þess að ég fékk enn eitt reality shock-ið er snertir aldurinn á mér! Þannig var að ég fór niður í bæ á miðnætti til að sjá þau leika sér á torginu og sá mér til mikillar ánægju að það var hljómsveit að spila sem var vel skipuð hreinræktuðum MA-ingum þannig að nýstúdentarnir áttu von á góðum stuðningi frá sveitinni. Svo komu þau marserandi þessi glæsilegi hópur - fulltrúar framtíðarinnar í heiminum - og þar var m.a. að finna krakka sem ég hef þekkt frá fæðingu og blautu barns beini, þarna voru líka krakkarnir sem ég kenndi þegar þau voru í 1. bekk í MA árið 2003 til 2004. Svo varð mér litið á sviðið og sá þá að það voru nokkrir af mínum busum í sveitinni - þá fattaði ég að þau einmitt busuðu þá sem voru að útskrifast... og þá kom sjokkið... Það eru komnar tvær kynslóðir af MA-ingum í gegnum skólan síðan ég kláraði!!! Dísús... og það sem verra er, er að ég man það svo vel þegar ég sem krakki braust í gegnum mannþröngina á 17. júní niður í bæ til þess að horfa uppá (í bókstaflegri merkingu) þessa flottu og fullorðnu einstaklinga sem voru að fagna því að vera búin með erfiðasta skóla í heimi, en svo voru þau bara allt í einu, svona næstum eins og á einni nóttu orðin litlu börnin sem ég kenndi og busarir mínir busuðu! Þetta er agalegt hehe! En aftur til hamingju með þetta Úlla og þið hin öll líka.

En nú er ég farinn á tónleikna
Later,
H. 


» 4 hafa sagt sína skoðun

29.05.2007 22:45:39 / hannesa

Próftíð - þá gerast hlutirnir

Á morgun er ég að fara í enneitt blessað lögfræðiprófið vegna vinnunnar - merkilegt hvað maður þarf að kunna mikið í þessari lögfræði til þess að mega vera miðlari...

Og þar sem það er próf á morgun þá fannst mér upplagt og tímabært að blogga örlítið um daginn og veginn - segja frá mér og spurja frétta af samferðafólki mínu ;) Já maður hefur engu gleymt síðan á háskólaárunum 8)

Af mér er fátt að frétta - fór noður um helgina og hafði það gott. Borðaið mömmumat, kenndi stærðfræði, horfi á vídjó, át ís, svaf út, borðaði Greifa pítsu... svona á lífið að vera

Svo eru Grímur og Gréta að koma með bönin þrú í helgarslökun í borgina núna um næstu helgi - þau fá að sálfsögðu gistingu á Hótel Dunhaga. Það verður mjög gott að fá þau - það er svona smá aðhald sem felst í þessu, ég þarf að laga til, hafa mat í ísskápnum handa svöngum litlum munnum, fara snemma á fætur o.s.frv. :)

Annars er það helsta þessa dagana að við verðum með stóra kynningu á afleiðum sem fjárfestingakosti núna í vikunni fyrir eitthvað af viðskiptavinunum okkar - það verður gaman að hitta þá loksins og kynnast þeim... vonum bara að kynningin gangi vel þannig að þetta fari allt saman vel af stað ;)

 Jæja - nú get ég ekki svikist um lengur... aðildarreglur NOREX bara æpa á mig - dauði og djöfull!!

L. for lögfræði baby,
H.


» 5 hafa sagt sína skoðun

14.05.2007 23:28:12 / hannesa

Nýja djobbið...

Í dag áttu fyrstu viðskiptin sér stað á íslenska afleiðumarkaðinum. Framvirkur samningur á Kaupþing með lokadag í september var fyrsta afurðin sem var seld. Nú er sem sagt nýja djobbið formlega komið af stað - jibbíkóla ;-)

 Kveðja H.


» 7 hafa sagt sína skoðun

13.05.2007 15:13:21 / hannesa

Til íslensku þjóðarinnar

Kæru landsmenn,

ég vil þakka ykkur kærlegar fyrir þann gríðarlega varnarsigur sem við unnum núna í nótt. Það er alveg ljóst að þó hluti þjóðarinnar sé með hávaða og læti og búandi til storma í hverju vatnsglasinu á fætur öðru þá er samt ennþá til fólk sem skilur útá hvað þetta gengur. Hvort sem sömu flokkar mynda nýja ríkistjórn eða önnur samsetning kemur fram þá finnst mér það liggja ljóst fyrir að sigurinn í þessum kosningum felst í því að ríkistjórnin hélt velli.

Takk fyrir mig.

Njótið líðandi stundar
H.


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8
Leitarbox